Í síðasta mánuði var opnað fyrir umsóknir um tímabundna útgreiðslu séreignarsparnaðar. Sérstök útgreiðsla séreignarsparnaðar verður hér eftir greidd út 20. hvers mánaðar. Umsókn sem berst 15. hvers mánaðar eða fyrr er greidd út 20. sama mánaðar.
Hægt er að sækja um tímabundna útgreiðslu á séreignarsparnaði með rafrænum skilríkjum á sjóðsfélagavef.
Þeir sem ekki eru með rafræn skilríki geta sent póst á netfangið RadgjofVL@landsbankinn.is og óskað eftir því að fá sent umsóknarform. Þegar formið hefur verið fyllt út og undirritað skal skanna það (eða taka mynd af undirrituðu skjali með símanum) og senda aftur á sama netfang.
Séreignarsparnaður (viðbótarlífeyrissparnaður) er alla jafna ekki laus til útgreiðslu fyrr en 60 ára aldri er náð. Vegna Covid-19 hafa stjórnvöld veitt heimild fyrir tímabundinni útgreiðslu. Þetta úrræði getur hentað vel fyrir þá sem missa tekjur, sérstaklega ef annar sparnaður er ekki fyrir hendi. Á hinn bóginn þarf að hafa í huga að við úttektina minnkar inneignin sem verður til taks þegar fólk nær lífeyrisaldri en þá lækka tekjur almennt töluvert.